Frá því reglugerð
um strandveiðar var gefin út hefur umsóknum rignt inn til
Fiskistofu.
Stofan metur umsóknir og gefur út greiðsluseðil þegar ljóst er
að þær uppfylla
þau skilyrði sem þarf til að fá strandveiðileyfi.
Leyfisgjald er kr.
0-5-17-.
Greiðsluseðill er
sendur umsækjenda í pósti eða hann birtist í heimabanka.
Þegar greitt hefur
verið sendir Fiskistofa veiðileyfi til viðkomandi, í
pósti, en ef óskað
er eftir getur Fiskistofa sent leyfið í faxi til
bráðabirgða.
Rétt er að ítreka
að óheimilt er að hefja strandveiðar fyrr en veiðileyfi
er komið um borð í
bátinn.
Þeim sem eru með
veiðileyfi í atvinnuskyni er bent á að það leyfi leggst í
dvala til 1.
september um leið og greiðsluseðill er gefinn út. Veiðileyfi
í atvinnuskyni –
með krókaaflamarki eða aflamarki kviknar svo upp 1.
september nk.
Færsla veiðiheimilda milli ára verður með sama hætti og
verið hefur og
tilfærsla króka- og aflamarks er hægt að framkvæma til 15.
september.
Í samtölum við
starfsfólk Fiskistofu hefur komið fram að mikill atgangur
hefur verið í
kringum umsóknirnar. Margir hafa kosið að koma með umsóknir
sínar til
stofunnar, aðrir nota faxið eða póstinn. Allt hefur þó gengið
vel og ljóst að
fyrstu strandveiðileyfin verða gefin út í dag. Þeir sem
þau fá geta hafið veiðar á nk. sunnudag, 28.
júní.