Til hamingju Egill

 

Egill Kristjánsson sjómaður og trillukarl var kosinn
Vestfirðingur ársins 2008.

Egill er 88 ára Súgfirðingur og rær á bát sínum Blikanesi íS
51 sem er í krókaaflamarkskerfi.  
Aðallega stundar Egill handfæraveiðar en kippir einstaka sinnum með
nokkrum línubölum.   

 

Blikanes er 3,4 brl. að stærð smíðað í Hafnarfirði
1990.  1999 lét Egill, þá 81
árs  setja á bátinn skutgeyma. 

Afli Egils á sl. sumri var tæp 17 tonn, sem hann fékk í 14
róðrum eða rúmt tonn á dag.  
Í 8 róðrum kom Blikanesið með meira en 1,7 tonn að landi.  Besti róður Egils var 12. ágúst en þá
landaði hann 4-8-1 kg sem er ótrúlegur árangur hvernig sem á það er litið.

 

Haustið 2005 ákvað Egill að setjast í helgan stein. Gamalt máltæki
segir að tvisvar sé sá feginn sem á steininn sest.  Það sannaði Egill rækilega með því að standa upp af hinum
helga stein og halda á ný til sjávar á Blikanesinu.

 

Landssamband smábátaeigenda óskar Agli Kristjánssyni til
hamingju með útnefninguna.  Egill
er vel að henni kominn og lífshlaup hans sannarlega góð fyrirmynd eða eins og
segir í ummælum lesenda bb.is: „Hann er hornsteinn vestfirsks samfélags,
lifandi fyrirmynd fyrir unga sjómenn, hörkutól og einstakt góðmenni“.