Trillukarlar á Austurlandi fagna ákvörðun um hvalveiðar

Stjórn Félags smábátaeigenda
á Austurlandi fundaði í gær og samþykkti eftirfarandi:

„Stjórn Félags smábátaeigenda
á Austurlandi fagnar ákvörðun sjávarútvegsráðherra, Einars K. Guðfinnssonar, um
að leyfa hvalveiðar.  Telur
stjórnin að ákvörðunin sé byggð á vísindalegum rökum.

Hvetur stjórnin
forsvarsmenn hvalaskoðunarfyrirtækja og hvalveiðimanna til að vinna saman.

Á þann hátt er
hægt að nýta og njóta.

 

Einnig lýsir
stjórnin ánægju sinni með löngu tímabæra aukningu þorskveiðiheimilda.

 

Borgarfirði
eystra 2009-01-28

Ólafur
Hallgrímsson formaður“