Úthlutað krókaaflamark dregst saman um 22%

Fiskistofa hefur sent útgerðum íslenskra fiskiskipa tilkynningu um aflaheimildir á fiskveiðiárinu sem hefst þann 1. september nk.

Í krókaaflamarki eru 422 bátar og eru það 88 bátum færra en á yfirstandandi fiskveiðiári. Krókaaflamark sem þeim er úthlutað á grunni krókaaflahlutdeilda er 4-3-33 þorskígildistonn. Það er tæplega 22% samdráttur frá upphafsúthlutun til krókabáta á fyrra fiskveiðiári.

Alls er úthlutað aflamark/krókaaflamark á grunni hlutdeilda 7-3-301 þorskígildistonn, sem er 18,7% samdráttur í þorskígildum frá upphafsúthlutun fyrra fiskveiðiárs.