Eigendur grásleppubáta hafa á undanförnum dögum
fengið bréf frá Fiskistofu um innheimtu veiðigjalds fyrir grásleppuhrogn. Vegna mistaka láðist að reikna gjaldið í
upphafi fiskveiðiárs og senda út innheimtuseðil.
Krafa fyrir öllu veiðigjaldinu hefur verið sett
á heimabanka hvers og eins aðila. Vakin
er athygli á að hægt er að greiða gjaldið með þremur jöfnum greiðslum. Kjósi aðilar að hafa þann háttinn á
verða þeir senda tölvupóst þess efnis til Fiskistofu:
Nauðsynlegt er í bréfinu að tilgreina skipaskrárnúmer
og kennitölu viðkomandi.