Veðurstofan með fyrstu verðlaun

1. febrúar sl. var haldin á Hótel Sögu vefráðstefna Samtaka vefiðnaðarins, SVEF – www.svef.is . Í lok ráðstefnunnar voru veitt „Íslensku vefverðlaunin 2007“. Á annað hundrað vefir voru tilnefndir til þátttöku og voru verðlaun og viðurkenningar veitt í alls átta flokkum.

Það er ánægjulegt að greina frá því hér að Veðurstofa Íslands – www.vedur.is – fékk verðlaun sem besti vefurinn í almannaþjónustu.

Umsögn dómnefndar var á þessa leið: „Sjaldan hefur sést jafn vel heppnuð breyting á vef. Allt er til sóma, viðmótið er vel hannað, nytsamlegt og aðgengilegt sem gerir öllum kleift að skoða vefinn. Einnig er vefurinn mjög gagnvirkur og hægt að skoða allt það nýjasta tengt veðurfari, mengun, jarðskjálftum og fleiru … besti vefur í almannaþjónustu er www.vedur.is.“

LS bendir sérstaklega á
http://www.vedur.is/vedur/spar/thattaspar#teg=samsett

og

http://www.vedur.is/vedur/spar/atlantshaf/

sem áhugaverðar síður.

LS óskar Veðurstofu Íslands til hamingju með velheppnaða heimasíðu.