Fiskistofa svarar athugasemdum frá eigendum sóknardagabáta

Fiskistofa er þessa dagana að svara þeim eigendum sóknardagabáta sem gerðu athugasemdir við væntanlegt krókaaflamark. Alls bárust tæplega 50 erindi og spannaði efni athugasemda yfir breitt svið.
Aðilar sem nýlega voru byrjaðir í sóknardagakerfinu og höfðu byggt sínar áætlanir á að veiðikerfið yrði til framtíðar vöktu athygli á að væntanlegt krókaaflamark nægði engan vegin fyrir skuldbindingum sem gerðar höfðu verið. Óskað var eftir að þeir fengju aðlögun að krókaaflamarkinu eins og um nýja báta væri að ræða.
Þá bárust erindi frá útgerðum sem komu með nýja báta inn í sóknardagakerfið á sl. fiskveiðiári eða yfirstandandi þar sem þeir völdu að vera áfram í sóknardagakerfinu, eitt eða tvö ár eða eftir því sem lögin boðuðu.
Þá voru gerðar athugasemdir við reiknaða viðmiðun, uppreiknings vegna keyptra sóknardaga, erindi frá nýjum aðilum sem Fiskistofa taldi að ekki hefðu tilkynnt báta sína inn í kerfið áður en lögin voru samþykkt.
Í bréfi Fiskistofu kemur fram að kærufrestur til sjávarútvegsráðuneytisins er 3 mánuðir.

Fiskistofa tilkynnir kvótann 5-20-2004.”