Ný stjórn LS var kjörin á aðalfundinum. Guðlaugur Gunnarsson Ólafsvík kom í stað Valentínusar Guðnasonar Sykkishólmi og Steinn Rögnvaldsson Hrauni á Skaga í stað Sverris Sveinssonar Siglufirði.
Guðlaugur er formaður Snæfells og Steinn formaður Skalla. Þeim er hér með óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis sem stjórnarmenn í Landssambandi smábátaeigenda.
Sverrir Sveinsson hafði verði í stjórn LS frá 2006 eða í 9 ár, en Valentínus kom inn í stjórnina í fyrra og hafði því verið í eitt ár.
Formaður LS Halldór Ármannsson afhenti þeim gjafir í fundarlok og þakkaði þeim fyrir góð störf og að leggja sitt að mörkum til eflingar smábátaútgerðarinnar.