Aðalfundur Strandveiðifélagsins Króks var haldinn á Tálknafirði laugardaginn 22. september. Gott hljóð var í Króksmönnum þennan daginn enda einmunablíða og því margir á sjó sem kom niður á mætingu á fundinn.
Í máli Einars Helgasonar formanns Króks kom fram að félagið hefði komið með beinum hætti að strandveiðifrumvarpinu með því að mæta á fund atvinnuveganefndar Alþingis og veita umsögn. Hann sagði ánægjulegt hversu svæðisfélög LS tóku breytingunum vel þrátt fyrir að dögum gæti fækkað á öllum svæðum að A undanskildu.
Skeljungsdælan
Formaður fagnaði því sérstaklega að Skeljungsdælan væri loksins komin í notkun. Mikil bót lægra olíuverð og hraðari dæling.
Stjórn Strandveiðifélagsins Króks:
Einar Helgason formaðurDavíð Bredesen ritari / gjaldkeriHalldór Árnason varaformaður
Tillögur Króks til 34. aðalfundar LS