Tímamót urðu á strandveiðum í lok síðustu viku með útgáfu tveggja reglugerða. Annars vegar undirritaði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra reglugerð um breytingu á leyfilegum heildarafla á yfirstandandi fiskveiðiári og hins vegar undirritaði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra breytingu á reglugerð um ráðstöfun afla sem dreginn er frá heildarafla vegna byggðaaðgerða.
Breyting á lögum um stjórn fiskveiða (jöfnunarheimild) sem samþykkt voru á Alþingi 30. apríl sl. veitti atvinnuvegaráðherra heimild til að bæta 2.700 tonnum við úthlutað aflamagn í þorski og ráðstafa til strandveiða. Á grundvelli hennar staðfesti innviðaráðherra að ætluð viðmiðun í þorski til strandveiða fari úr 10.650 í 13.350 tonn.
Þetta er mesta aflamagn sem úthlutað hefur verið til strandveiða frá því veiðarnar hófust í júní 2009.
Með þessari ákvörðun hafa Alþingi og ríkisstjórn færst nær 48 daga fyrirheiti til strandveiða, eflt þær og bætt rekstrarskilyrði þeirra sem þær stunda.














