Í gær 23. júní voru samkvæmt strandveiðialmanakinu 27 dagar liðnir frá því þær hófust 4. maí sl. Lítill munur er á þorskafla milli ára, nú búið að veiða 483 tonnum meira, 7%.

Það segir þó ekki alla söguna, þar sem menn eru mun lengur að ná „skammtinum“ nú en í fyrra. Algengt er að nú þurfi allan daginn til að ná viðunandi afla. Á þetta við öll svæði að undanskildu B-svæðinu – Strandir til og með vestanverðum Eyjafirði. Flestir sem rætt hefur verið við telja að ekki sé minna af þorski á slóðinni, meginástæðan liggi í miklu æti í sjónum og risjóttri tíð.
Eftir að bætt var við 2.700 tonn í viðmiðun á þorski til strandveiða spyrja menn sig gjarnan hvað aflinn dugi lengi. Meðalafli á dag stendur nú í 282 tonnum, var í byrjun mánaðarins 270 tonn. Hver þróunin verður á næstu dögum er útlokað að segja til um.
Taflan sýnir nýjustu tölur af gangi veiðanna.

Á svæðum A og D og hefur hver veiðiferð nú skilað minni afla en í fyrra, en aukning er á öðrum svæðum.














