Alls hefur 16.076 tonnum af þorski verið ráðstafað til byggðaaðgerða. Samkvæmt gildandi reglugerð skiptist aflamagnið milli einstakra byggðaaðgerða með eftirfarandi hætti:

Að auki hefur 2.700 tonnum verið bætt við viðmiðunarafla strandveiða á grundvelli breytingar á lögum um stjórn fiskveiða (jöfnunarheimild), sem Alþingi samþykkti 30. apríl sl. Sjá nánar.
Nú velta strandveiðimenn því fyrir sér hvort frekara aflamagni verði ráðstafað til strandveiða til að tryggja 48 veiðidaga. Einkum er horft til tilboðsmarkaðar Fiskistofu, þar sem nú er óskað eftir tilboðum í skipti á 4.256 tonnum af íslenskri sumargotssíld og 1.664 tonnum af makríl gegn þorski.
Ef skiptin skila meira magni af þorski en þorskígildi þeirra gefa til kynna gæti skapast svigrúm til að hækka viðmiðunarafla strandveiða enn frekar.
Frestur útgerða til að skila inn tilboðum rennur út kl. 14:00 þriðjudaginn 21. júlí 2026.













