Inga Sæland starfandi innviðaráðherra hefur undirritað reglugerð um aukinn þorskafla til strandveiða. Aukningin nemur 964 tonnum, fer úr 13.350 tonnum í 14.314 tonn.
Hækkun viðmiðunarafla er framhald af niðurstöðu tilboðsmarkaðar Fiskistofu, nú síðast þegar útgerðir létu frá sér þorsk í skiptum fyrir makríl og íslenska sumargotssíld.
Eftirspurn í uppsjávartegundirnar varð meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir, sem leiddi til þess að þær skiluðu rúmum þúsund tonnum meira af óslægðum þorski en ígildastuðlar sögðu til um.
Skiptistuðull á makríl fór í 0,432 og í íslenskri sumargotssíld 0,237. Þorskígildi þessara tegunda samkvæmt reglugerð eru 0,170 og 0,140.
Eftirfarandi er úr frétt RÚV þar sem rætt er við Ingu Sæland:

„Inga segir auka 1000 tonnin skipta miklu máli, þau séu tæplega 700 milljón króna virði.
„Þetta er afskaplega mikils virði fyrir fyrir strandveiðisjómennina okkar og brothættu byggðirnar okkar að sjá á plássin og mörg störf sem fá að lifa lengur.“
Inga segir vel hugsanlegt að skagað verði upp í 48 daga strandveiði gangi allt vel.
„Það fer náttúrulega bara eftir aflagæftum og hvernig hefur gengið og hvernig gengur að ná í það sem eftir er af útgefnum heimildum og það hefur bara gengið mjög vel í allt sumar.“













