Strandveiðisjómenn velta því fyrir sér hvort heimildir sem Inga Sæland starfandi innviðaráðherra bætti við strandveiðar dugi marga daga. Vangaveltur eru allt frá þremur til fimm daga.
Þegar fyrsti bátur landar í dag byrjar að telja niður frá 937 tonnum.
Á þeim 52 dögum sem strandveiðar hafa staðið yfir er meðaltalið á dag 257 tonn. Á bakvið þennan mikla afla standa 791 bátar. Best hefur fiskast á B svæðinu þar er meðaltalið á bát 20,2 tonn.

Á fyrstu þrem dögum sem búnir eru í ágúst hafa 577 bátar landað afla. Meðaltal hjá þeim var 608 Kg í róðri. Dagsafli þessa þrjá daga var að meðaltali 256 tonn.
Við lok veiða fimmtudaginn 6. ágúst var þorskafli strandveiða á yfirstandandi vertíð kominn í 13.377 tonn.














