Kæru félagsmenn, nú styttist í aðalfund Félags smábátaeigenda á Austurlandi.
Fundurinn verður haldinn í Beljanda Brugghúsi á Breiðdalsvík, Fimmtudaginn 10. September kl 1600.
Formaður og Framkvæmdastjóri LS hafa boðað komu sína á fundinn
Kynntar verða nýjar hugmyndir stjórnvalda að punktakerfi í strandveiði.
Boðið verður uppá kaffi og með því auk kvöldverðar.
Dagskrá fundarinns:
1. Skýrsla stjórnar
2. Ársreikningur
3. Erindi
4. Ályktanir og tilnefningar fulltrúa (aðal og vara) á 42. Aðalfund Landsambands Smábátaeigenda
5. Önnur mál
Stjórn FSA hvetur a félagsmenn að fjölmenna til fundar.
Fyrir hönd stjórnar
Guðlaugur Birgisson
8998995













