Aðalfundur Skalla, félags smábátaeigenda á Norðurlandi vestra, 9. september

Aðalfundur Skalla verður haldinn  mið­viku­daginn 9. sept. 2026 kl. 13.00 í Harbour Restaurant & Bar, Skagaströnd.

Kjartan Páll Sveinsson, formaður LS, og Bryndís Ósk Björnsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri, munu fara yfir stöðu mála og starfsemi LS á árinu. Í kjölfarið hefst undirbúningur fyrir aðalfund og landsfund.

Önnur mál á dagskrá eru skýrsla stjórnar, ársreikningur, kosning stjórnar og skoðunarmanna og umræður og ályktanir.

Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna til fundar og viðra skoðanir sínar til þess sem hæst ber í málefnum smábátaeigenda. Guðni Már Lýðsson, formaður Skalla