Aðalfundur Sæljóns, félags smábátaeigenda á Akranesi, 18. september

Aðalfundur Sæljóns verður haldinn föstudaginn 18. sept. 2026 kl. 16.30 í húsnæði fjöliðjunnar að Smiðjuvöllum 28.

Kjartan Páll Sveinsson, formaður LS, og Bryndís Ósk Björnsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri, munu fara yfir stöðu mála og starfsemi LS á árinu. Í kjölfarið hefst undirbúningur fyrir aðalfund og landsfund.

Önnur mál á dagskrá eru skýrsla stjórnar, ársreikningur, kosning stjórnar og skoðunarmanna og umræður og ályktanir.

Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna til fundar og viðra skoðanir sínar til þess sem hæst ber í málefnum smábátaeigenda.

Jóhannes Simonsen, formaður Sæljóns