Samgöngustofa – eykur þjónustu við sjómenn og smábátaeigendur

Nú geta smábátaeigendur og eigendur annarra skipa fengið upplýsingar um skip sín á Mínar síður á Island.is  „Eignir og tæki“.

„Skráning“ og „Skírteini og leyfi“ veita upplýsingar um bátinn og um gildistíma haffærisskírteini og annarra skipsskírteina.

Þegar skip eru í eigu einstaklinga nálgast þeir upplýsingarnar gegnum sín rafrænu skilríki, en þegar skip eru í eigu fyrirtækja þarf viðkomandi einstaklingur að skrá sig inn í umboði fyrirtækisins.  

Samgöngustofa bendir á að þegar endurskoðun er skráð á bátinn fellur haffærisskírteini úr gildi ef ekki hefur verið bætt úr þegar frestur er liðinn.

Jafnframt geta sjómenn nálgast upplýsingar á Mínum síðum undir „Starfsleyfi“ – „Starfsleyfi sjómanna·.  „Próf, nám og frestir“ veitir upplýsingar um nám, námskeið, verkleg próf vegna skemmtibátaskírteina, sveinspróf, gilda fresti vegna öryggisfræðslunámskeiða, fjarskiptaréttindi, gild alþjóðleg sjómannalæknisvottorð og staðfestingar til erlends fánaríkis um gildi alþjóðlegra atvinnuskírteina. 

Í liðnum „Atvinnuskírteini” birtast gild atvinnuskírteini, hæfnisskírteini, skemmtibátaskírteini, þar á meðal skírteinistegund, réttindaflokkur og gildislokadagsetning, áritanir erlends sjómanns til starfa á íslenskum skipum.  Á síðunni eru réttindaflokkar útlistaðir:  “Nánar um réttindaflokka skírteina”

„Lögskráningar” sýna heildarlögskráningardaga, siglingatími eftir stöðu og skipaflokkum, auk upplýsinga um gildar undanþágur og gildar sjóferðabækur.

Í tilkynningunn hvetur Samgöngustofa sjómenn að kynna sér þessar upplýsingar og fylgjast vel með gildistíma sinna atvinnuskírteina, læknisvottorða og öryggisnámskeiða og annarra réttinda. Mikilvægt er að sækja tímanlega um endurnýjanir atvinnuskírteina hjá Samgöngustofu og skrá sig á tímanlega á öryggisnámskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna svo lögskráning geti gengið snurðulaust fyrir sig.

Ef upplýsingar eru rangar eða vantar eru sjómenn hvattir til að senda Samgöngustofu tölvupóst og viðeigandi gögn á sigling@samgongustofa.is

Upplýsingar þessar eru byggðar á lögskráningarkerfi sjómanna, eða Skútunni, sem tekin var í notkun í maí 2023.