Nú fer hver að verða síðastur að senda inn umsögn í samráðsgátt um veiðistjórn hrognkelsa. Þegar þetta er ritað hafa 11 umsagnir borist og má lesa þær með því að blikka hér.
Bent skal á að 11. október (morgundagurinn) er síðasti dagurinn sem samráðsgáttin er opin.
LS hafa borist upplýsingar um aðila sem ekki hefur tekist að koma umsögnum frá sér inn í samráðsgáttina. Þeir sem lenda í slíkum vandræðum er bent á að hafa samband við skrifstofu LS eða senda tölvupóst.













