Niðurstöður alþjóðlegar rannsóknar um heilindi í viðskiptum með sjávarfang hefur komið af stað mikilli umræðu. Matís er þátttakandi í rannsókninni og kynnti niðurstöður rannsóknarinnar 16. mars sl.
Í rannsókninni er greint hvort fisktegund sé í samræmi við það sem gefið er upp og eru auk Matís yfir 40 aðilar sem taka þátt um alla Evrópu. Fyrstu niðurstöður hér á landi eru sláandi þar sem þær sýna að um 30% allra sýna sem tekin voru á veitingastöðum innihéldu annan fisk en tilgreint var á matseðli.
Fyrir okkur Íslendinga er það gríðarlega mikilvægt að heilindi séu viðhöfð í viðskiptum með fisk. Dæmi eru um að ódýr hvítfiskur sé seldur sem þorskur úr N-Atlantshafi. Í frétt Matís er bent á að hefbundið verð fyrir brauðaða pangasíus sé um fjórar evrur á hvert kg þegar verðið á þorski geti verið um 25 evrur.