Töluvert hefur verið hringt í LS undanfarna daga til að spyrja út í stöðuna á umsóknum um strandveiðileyfi og haffæri báta. Innviðaráðuneytið hefur nú birt reglugerð um þetta. Í henni kemur fram að:
“Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 3. gr. er Fiskistofu heimilt á strandveiðivertíðinni 2026 að synja ekki umsókn um strandveiðileyfi þótt skilyrði um haffærisskírteini séu ekki uppfyllt við umsókn skv. 1. mgr. 3. gr. Skal leyfi hins vegar ekki veitt fyrr en skilyrði um haffærisskírteini eru uppfyllt. Önnur skilyrði reglugerðarinnar skulu að öðru leyti vera uppfyllt.”
Reglugerðina má finna hér.













