Birt hefur verið álit meiri hluta atvinnuveganefndar Alþingis um frumvarp um sértækar ívilnanir og jöfnunarheimildir. Meiri hlutinn leggur til að ekki verði ráðist í afnám línuívilnunar og rækju- og skelbóta og beinir því til ráðherra að taka þá þætti til skoðunar við heildarendurskoðun á byggðakerfinu, 5,3% hluta fiskveiðistjórnunarkerfisins.
Sá hluti sem eftir stendur í frumvarpinu er ákvæði sem heimilar ráðherra að ráðstafa auknu aflamagni til strandveiða til viðbótar við úthlutað aflamagn á fiskveiðiárinu, allt að 2.700 tonnum af óslægðum þorski.
„Mikilvægt er að efla og tryggja aflaheimildir til 48 daga í strandveiðum til framtíðar við endurskoðun á 5,3% byggðahluta fiskveiðistjórnarkerfisins“, eins og segir í áliti meirihluta atvinnuveganefndar.
Að ósk nefndarinnar áttu umsagnir við frumvarpið aðeins að fjalla um ákvæði er tæki til heimildar ráðherra til að auka við aflamagn til strandveiða. Í umsögn LS var að fullu tekið tillit til þess.
Breytt frumvarp bíður nú eftir að fara á dagskrá þingsins til 2. umræðu.













