Aðalfundur Skalla verður haldinn miðvikudaginn 9. sept. 2026 kl. 13.00 í Harbour Restaurant & Bar, Skagaströnd.
Kjartan Páll Sveinsson, formaður LS, og Bryndís Ósk Björnsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri, munu fara yfir stöðu mála og starfsemi LS á árinu. Í kjölfarið hefst undirbúningur fyrir aðalfund og landsfund.
Önnur mál á dagskrá eru skýrsla stjórnar, ársreikningur, kosning stjórnar og skoðunarmanna og umræður og ályktanir.
Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna til fundar og viðra skoðanir sínar til þess sem hæst ber í málefnum smábátaeigenda. Guðni Már Lýðsson, formaður Skalla













