Aðalfundur Kletts – félags smábátaeigenda á Norðurlandi eystra verður haldinn fimmtudaginn 17. sept. 2026 kl. 17.30 í húsakynnum Kiwanis á Akureyri, Óseyri 6.
Kjartan Páll Sveinsson, formaður LS, og Bryndís Ósk Björnsdóttir, nýráðinn framkvæmdastjóri, munu fara yfir stöðu mála og starfsemi LS á árinu. Í kjölfarið hefst undirbúningur fyrir aðalfund og landsfund.
Önnur mál á dagskrá eru skýrsla stjórnar, ársreikningur, kosning stjórnar og skoðunarmanna og umræður og ályktanir.
Við hvetjum félagsmenn til að fjölmenna til fundar og viðra skoðanir sínar til þess sem hæst ber í málefnum smábátaeigenda.
Bjarni Reykjalín Magnússon, formaður Kletts













