Strandveiðar hafa verið stundaðar við Ísland frá landnámi. Þessi elsti atvinnuvegur Íslendinga hefur viðhaldist í aldanna rás, þar sem þekking og kunnátta hafa gengið kynslóðanna á milli. Í dag stuðla strandveiðar að sjálfbærum og umhverfisvænum veiðum, styðja við smærri samfélög og jafna aðgang að auðlindum sjávar.

Þrátt fyrir augljósa kosti strandveiða fyrir haf og þjóð hafa stjórnvöld haldið smábátaflotanum í spennitreyju svo áratugum skiptir. Til þess að rétta hlut trillukarla og kvenna innan sjávarútvegskerfisins hafa Landssamband smábátaeigenda og Strandveiðifélag Íslands tekið höndum saman og framleitt kynningarmyndbönd sem draga raunsæja mynd af lífi og starfi smábátasjómanna og framlagi þeirra til menningar, umhverfisverndar og hagsældar.

Strand­veiðar opna dyr fyrir þá sem vilja stunda sjó­sókn óháð duttl­ungum stór­út­gerð­ar­inn­ar, enda er kerfið sprottið af úrskurði mann­rétt­inda­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt til atvinnu­frelsis og rétt til að velja sér búsetu.

Strand­veiðar eru mik­il­vægur liður í því styrkja brot­hættar byggðir og glæða sjáv­ar­pláss lífi á ný. Kost­ur­inn við strand­veiðar er að þær eru alfarið sjálf­sprottin gras­rót­ar­lausn á byggða­vand­an­um. Innan strand­veiði­kerf­is­ins er það fólkið í land­inu sem stjórnar för.

Afli strand­veiða er fyrsta flokks vara sem er afar eft­ir­sótt um allan heim. Öllum afla er landað sam­dæg­urs, með­ferð fisks­ins góð og krafan um vist­vænar og félags­lega ábyrgar vörur æ hávær­ari með hverju ári.

Strand­veiðar eru umhverf­is­væn­ustu veið­arn­ar, hvort sem litið er til kolefn­is­spors, rösk­unar á líf­ríki sjávar, meðafla eða plast­meng­unar.

Rabbi gerir út frá Ólafsvík á bátnum Katrín II SH 475.

Dóra gerir út bátinn Andra SH 255 frá Rifi.

Helgi Hlynur gerir út bátinn Hafbjörgu NS 16 frá Borgarfirði eystri.

Friðjón og dóttir hans Ásta Björk gera út bátinn Fíarún SH 13 frá Grundarfirði.

Alexander og afi hans, Jón Marteinn, byrjuðu á strandveiðum 2010 þegar þeir keyptu bátinn Mjóna frá Kálfavík. Nú gerir Alexander út sinn eigin bát, Bláa Afa á meðan Jón Marteinn rær Mjóna. Þeir gera báðir út frá Bolungarvík.