Strandveiðar í maí og júní

Í gær 30. júní lauk öðru 12 daga tímabili strandveiða.  Alls voru 306 bátar sem réru 12 daga í nýliðnum mánuði, á móti 113 í maí sl.   81 hafa náð öllum 24 dögunum.  

Nú á eftir að veiða rúman þriðjung af viðmiðunarafla tímabilsins 13.350 tonnum.  Samanlagður þorskafli í maí og júní varð 8.618 tonn hjá þeim 782 bátum sem hafa hafið veiðar.   Þorskur er 92,4% heildaraflans. 

Taflan sem hér fylgir sýnir sundurgreiningu eftir svæðum auk annarra upplýsinga.   

Töflur sem hér fylgja sýna samanburð fyrir maí – júní á tímabilinu [2023 – 2026]

Þorskafli sundurgreindur eftir svæðum

Þorskafli á svæði A hefur dregist saman um 7,5% á tímabilinu og frá í fyrra um 3,5%.  Veruleg aukning á svæði C.

Taflan sýnir meðaltal fjölda róðra.

Fjöldi báta sem landað hafa afla

Þorskafli sundurgreindur á svæði – meðaltal á hvern bát.

Að lokum eru það fjödi róðra – daga sem róið hefur verið – segir nokkuð til um tíðarfarið þegar lítil breyting er a fjölda báta.